Jólalegt brokkólísalat með rauðkáli og trönuberjum

Jólalegt brokkólísalat. Mögulega eru það trönuberin sem gera það jólalegt … og grænu liturinn í brokkólíinu. Rauðkál er líka svolítið hátíðlegt grænmeti er það ekki? Þetta er allavega einstaklega ferskt og fallegt salat með vott af hátíðlegu bragði sem passar ofboðslega vel með jólamatnum sem stundum getur verið þungur og saltur. Þetta salat er auðvitað gott allan ársins hring en einhvernegin höfum við verið að tengja það við jólin síðustu ár.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 1 lítill haus Brokkólí

  • 1/4 rauðkál

  • 2 dl trönuber

  • 2 dl lífrænar brotnar kasjúhnetur frá Rapunzel

  • 2 tsk dijon sinnep

  • 3 tsk balsamik edik

  • 4 tsk olífuolia

  • 4 tsk agave

  • himalayasalt eða jurtasalt

Aðferð:

  1. Byrjið á að skera rauðkálið niður í örþunna strimla og stytta þá svo niður í þægilega munnbitalengd. Komið rauðkálinu fyrir í skál og stráið hnífsoddi af himalayasalti yfir og nokkrum dropum af ólífuolíu og nuddið rauðkálið í stutta stund og finnið hvernig það mýkist.

  2. Skolið og skerið brokkólíið í litla bita og bætið útí skálina með rauðlkálinu ásamt trönuberjum.

  3. Ristið kasjúhneturnar á þurri pönnu í örfáar mínútur og bætið útí skálina.

  4. Útbúið dressingu með því að hræra saman sinnepi, agavesírópi, ólífuolíu og balsamik ediki. Hellið dressingunni yfir salatið og blandið vel.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Piparkökukúlur

Next
Next

Sænskir lussekatter með saffran