Spæsí chipotle salat
Spæsí chipotle salat
Hér erum við með ótrúlega ferskt og gott salat með spicy tófú og jalapeno dressingu. Algjör bragðlauka bomba. Við getum sagt að þetta salat sé sumarlegt og saðsamt.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
Fyrir salatið:
1 bakki íssalat
2 öskjur litlir tómatar
1 gúrka
1 papríka
½ rauðlaukur
1 dós lífrænar maísbaunir (Rapunzel)
1 avocado
1 búnt kóreander
Safi úr ½ lime
Fyrir tófúið:
1 pakki tófú (450gr)
¾ chipotle paste
½ dl vatn
½ dl olía
1 tsk sojasósa eða tamari
Sósan:
1 askja oatly ifraiche
2-3 msk af inlögðum jalapeno
1 msk safi úr jalapeno krukkunni
Safi úr ½ lime
Aðferð:
Ég mæli með að *pressa tófúið áður.
Byrjið á að útbúa marineringu fyrir tófúið með því að blanda saman chipotle paste-i, vatni, olíu og sojasósu í skál. Skerið tófúið í litla teninga og komið fyrir í nestistboxi. Hellið marineringunni yfir tófúið, lokið nestisboxinu og hristið til svo marineringin þeki alla tófúteningana. Leyfið tófúinu að marinerast í amk 30 mínútur.
Saxið niður íssalatið, grænmetið og kóreanderinn og komið fyrir í stórri skál ásamt gulu baununum. Pressið safa úr ½ lime yfir og blandið vel.
Tófúið (og marineringin) er svo steikt á pönnu í smá olíu þar til teningarnir eru farnir að brúnast og fá smá skorpu, þá ætti pannan að vera orðin nokkuð þurr. Tekur u.þ.b. 15 mínútur.
Dressingin er svo útbúin með því að blanda öllu saman sem í hana fer með töfrasprota eða litlum blender.
*Tófú er pressað með því að vefja það inní klút og leggja eitthvað þungt ofan á. Þyngdin pressar óþarfa vökva úr tófúinu og klúturinn dregur vökvann í sig. Það er ágætt að pressa tófúið í klukkustund en mér finnst oftast best að gera þetta kvöldinu áður. Það er líka hægt að nota tófúpressu.
Verði ykkur að góðu.