Grænt salat með steiktum kjúklingabaunum
Baunir úr dós er svo handhægur og fljótlegur próteingjafi. Ég er með æði fyrir lífrænum kjúklingabaunum núna og mér finnst svo gott að steikja þær í smá stund á pönnu með kryddum til að setja útá stórt og gott salat og þar með gera það matmeira og næringaríkara. Þú getur í raun notað hvaða krydd eða kryddblöndur sem er. Ég er að dýrka tilbúnu kryddblöndurnar frá Kryddhúsinu, að þessu sinni valdi ég miðausturlenska kryddblöndu sem mér finnst passa einstaklega vel með fersku tahinisósunni. Baunir innihalda ekki bara prótein heldur einnig vítamín, steinefni og trefjar, sannkölluð “all in one” fæða. Ég myndi einnig segja að lífrænar baunir úr dós séu hinn fullkomni skyndibiti fyrir litlu krílin. Fyrir utan hvað þær eru hollar og góðar eru þær líka skemmtilegar fyrir litla putta.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft (fyrir 1-2):
Kjúklingabaunirnar:
1 dós soðnar lífrænar kjúklingabaunir frá Rapunzel
1 tsk ólífuolía
1 tsk “mið-austurlönd” kryddblanda Kryddhússins
Salatið:
1/2 bakki stökkt íssalat
1/2 gúrka
1/2 lítil rauðrófa
1/2 stór þroskaður avocado eða 1 lítill
1/2 stór haus brokkólí (gufusoðinn)
Appelsínu og karrý dressing með tahini:
2 msk ljóst tahini
1 tsk karrý
1/4 tsk túrmerik
1/8 tsk kanill
1 dl lífrænn appelínusafi
safi úr 1/2 lífrænni sítrónu
svartur pipar og salt eftir smekk
Aðferð:
Byrjið á að *gufusjóða brokkólíið.
Skolið salatið, skerið avocadoinn, afhýðið rauðrófuna og rífið hana niður ásamt gúrkunni. Ég elska að nota spíralskera en það er vel hægt að nota venjulegt rifjárn eða matvinnsluvél með rifjárni.
Útbúið dressinguna með því að blanda öllu saman sem í hana fer. Hægt er að hrista allt saman í krukku með loki eða nota einhverskonar blandara/töfrasprota.
Hellið vökvanum af kjúklingabaununum (hægt að geyma hann og nota í einhverskonar bakstur). Skellið baununum á pönnu ásamt kryddi og olíu og steikið þar til þær eru orðnar heitar og kryddið hefur þakið þær.
Raðið salati, rauðrófu, gúrku, brokkólí á disk ásamt avocado og toppið með krydduðum kjúklingabaunum og appelsínu-karrý dressingu.
*Gufusjóða: Gufusuðusikti er komið fyrir í potti og potturinn fylltur af vatni upp að siktinu. Komið brokkólíinu fyrir í siktið og setjið lok á pottinn. Leyfið því að gufusjóða á miðlungsháum hita þar til orðið mjúkt en ennþá vel grænt og lifandi. Ef soðið of lengi þá missir það græna litinn og næringarefnin missa styrk sinn.
Verði ykkur að góðu.