Rótargrænmetisfranskar með spicy kasjúmæjó

Hollari franskar með chili mæjó úr lífrænum kasjúhnetum. Það getur verið ótrúlega skemmtilegt að skera allskonar rótargrænmeti í strimla, baka í ofni og borða eins og franskar. Ef þú hefur ekki prófað að baka rauðrófur í ofni með olíu og salti þá mæli ég með því að prófa það, þær gætu komið þér skemmtilega á óvart. Ég hef verið að leggja áherslu á að borða hreint matarræði, velja lífrænt og sniðganga öll aukaefni síðustu vikur og hef verið að vinna mikið með kasjúhnetur í dressingar og sósur. Kasjúhnetur eru frábærar í sósur, áferðin verður merkilega creamy og í þokkabót verður sósan full af næringu. Hér er ég með chili kasjú “mæjó” sem passar einstaklega vel með rótargrænmetisfrönskum.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • ólífuolía

  • 2 litlar rauðrófur

  • 3 bökunarkartöflur

  • 1 sæt kartafla

  • salt

Chili kasjú “mæjó”:

  • 2 dl lífrænar kasjúhnetur, ég nota frá Rapunzel

  • 1 dl vatn

  • 1-2 hvítlauksrif

  • 1 tsk gróft dijon sinnep

  • safi úr 1/2 sítrónu

  • 1/4 ferskur rauður chili (eða eftir smekk)

  • salt

Aðferð:

  1. Byrjið á að hita ofninn uppí 200°C.

  2. Skrælið og skerið rótargrænmetið niður í strimla sem minna á franskar.

  3. Dreifið grænmetinu á ofnplötu, setjið smá olíu yfir. Mér finnst ég þurfa minni olíu ef ég dreifi úr olíunni með því að velta grænmetinu aðeins til með höndunum. Stráið smá salti yfir og bakið í ofni í 30-40 mínútur, fer soldið eftir grófleika strimlanna.

  4. Setjið allt sem á að fara í dressinguna í lítinn blender, eða blandið með töfrasprota. Smakkið til og bætið við salti, sítrónu eða chili eftir smekk.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Ferskpressaður safi með rauðrófu og fennel

Next
Next

Grænt salat með steiktum kjúklingabaunum