Red velvet smoothie

Þeir sem hafa fylgt mér í einhvern tíma eru sennilega farnir að sjá það hversu hrifin ég er að rauðrófum. Það er eins og líkaminn minn sæki rosalega í rauðrófur og ég elska það. Hér er rauðrófusmoothie sem kemur svo sannarlega á óvart með smá súkkulaðikeim. Engiferið kveður burt allt sem sumir vilja kalla moldarbragð rauðrófusafans og upphefur kakóbragðið. Mæli með að þið prófið …. og hér hefur smoothie-inn verið samþykktur af æðstu gæðaeftirlitsaðilum heimilisins sem eru 7 ára og 3 ára.

Færslan er unnin í samstarfi við Beutelsbacher á íslandi.

Þú þarft:

  • 200ml flaska af rauðrófusafa frá Beutelsbacher

  • 1,5 dl möndlumjólk

  • 2 bananar

  • 200gr frosin kirsuber

  • 1 vænn engiferbiti

  • 2 msk lífrænt kakóduft

Aðferð:

  1. Öllum hráefnum komið fyrir í blender og svo bara blanda, dansa og njóta.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Rauðrófusmoothie með bláberjum, appelsínum og kanil

Next
Next

Súkkulaðiíspinnar