Rauðrófusmoothie með bláberjum, appelsínum og kanil

Hér er smoothie sem er bæði sætur og súr með dass af hátíðleika. Hann er ríkur af andoxunarefnum, C-vítamíni og fleiri næringarefnum sem efla bæði ónæmiskerfið og blóðið í okkur. Fullkominn fyrir haustbyrjun.

Færslan er unnin í samstarfi við Beutelsbacher á íslandi.

Þú þarft:

  • 3 appelsínur (afhýddar)

  • 3 dl frosin vilt lífræn bláber

  • 1 dl rauðrófusafi frá Beutelsbacher

  • 1 banani

  • vænn biti engifer

  • dass af kanil

Aðferð:

  1. Fjarlægið hýðið af appelsínunum og setjið í góðan blandara ásamt öllu hinu og blandið þar til orðið rennislétt.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Einfalt og fljótlegt möndlunutella

Next
Next

Red velvet smoothie