Hummus pasta með súrkáli og ólífum

Hummus pasta er einn af okkar “go to” réttum þegar við viljum fljótlega, einfalda og bragðgóða máltíð. Hún verður mögulega oft fyrir valinu á mánudögum. Þeir sem hafa fylgt mér lengi hafa eflaust séð hana oft og mörgum sinnum en við verðum ekki þreytt á henni. Það elska jú allir pasta og svo er alveg brilliant að nota hummus sem sósu sem gerir réttinn saðsamari og próteinríkari á sama tíma. Til að fullkomna réttinn bætum við svo súru kontrasti með lífrænum grænum ólífum og súrkáli, fullkomið á móti hummusnum í miðausturlenskum anda, það er í raun þetta kombó sem gerir máltíðina. Svo bætir maður við því grænmeti sem maður á til að fá smá lit á diskinn, auka trefjar og “crunch”. Við fáum aldrei nóg af þessu og börnin ekki heldur….. þau eru bæði ólífusjúk.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi en við elskum grænu lífrænu ólífurnar frá þeim.

Þú þarft:

  • 500 gr spelt pasta

  • 2 box af keyptum hummus (við erum hrifin af þessum klassíska frá Sóma) eða heimagerðum hummus.

  • 1 krukka grænar lífrænar ólífur frá Rapunzel

  • Súrkál, við veljum oftast Klassískt en Karrýkálið frá “súrkál fyrir sælkera” er líka truflað með.

Við bætum svo því grænmeti sem við eigum við. T.d:

  • Kál

  • Gúrka

  • Papríka

  • Tómatar

  • eða salatafgangar síðan daginn áður.

Það má bæta við ólífuolíu og kryddi eins og t.d. oregano fyrir smá extra flottheit.

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum.

  2. Skolið og skerið grænmetið.

  3. Berið fram pastað með hummus, súrkáli, grænmetinu og ólífum.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Spírusamloka með tahini og sinnepi

Next
Next

Grænt spírusalat með sætri tahini og miso dressingu