Ferskt Thai tófú salat með uppáhalds miso dressingunni

Salat, tófu og misodressing allt í einni skál!? Það verður varla betra. Það fer ekki framhjá neinum að ég elska tófú en tófú hefur faktíst verið uppáhalds maturinn minn frá því ég man eftir mér. Hér er thaí inspireraður núðluréttur með tófú og minni uppáhalds miso dressingu.

Færslan er unnin í samstarfi við gerum daginn girnilegan.

Þú þarft:

  • 200gr íssalat

  • 400gr traditional hveitinúðlur

  • 1 þroskaður mangó

  • 1/2 rauðlaukur

  • 4 avocado

  • 2 rauðar papríkur

  • Ferskur kóreander

Tófúið:

  • 450 gr tófú (singh tahoe)

  • 2 msk blue dragon sesamolía

  • 2 msk blue dragon sojasósa

  • 1 msk lífrænt hlynsíróp

  • 1 1/2 tsk blue dragon engifermauk

Miso dressing:

  • 4 cm engifer (án híðis)

  • 2 msk miso paste

  • 1 msk blue dragon sesamolía

  • 1 msk blue dragon sojasósa

  • 1/2 lime (safinn)

  • 4 msk vatn

  • 4 msk olía

Aðferð:

  1. Tófúið er þerrað með klút eða eldhúsbréfi. Skerið tófúið svo í 1 cm teninga og steikið á þurri viðloðunarfrírri pönnu þar til tófúið hefur byrjað að gullna á hliðunum.

  2. Því næst er sesamolíu, soja, mable sírópi og engifermauki bætt útá pönnuna. Hrærið með jöfnu millibili svo allar hliðar steikist nokkurnvegin jafnt. Steikið í ca 10 mínútur eða þar til tófúið hefur dregið í sig sósuna.

  3. Sjóðið núðlurnar skv. leiðbeiningum á pakkningu (ca 5mín).

  4. Útbúið dressinguna með því að blanda öllum hráefnunum fyrir dressinguna saman í blender/nutribullet eða með töfrasprota.
    -ATH: dressingin er bilað góð svo stundum hef ég tvöfaldað uppskrifina!

  5. Berið fram með því að raða salatinu neðst, svo núðlunum og því næst smátt skorinni papríku, rauðlauk, mangó og avocado. Toppið með tófúbitum og kóreander. Dressingunni má svo hella yfir allt eða bera fram sér.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Kjúklingabaunir í tikkamasala sósu

Next
Next

Sykurlaust “súkkulaði” bananabrauð