Ofnæmisvænar kókoskúlur
Kókoskúlur er eitthvað sem við eigum reglulega heima enda frábært að grípa í milli mála fyrir smá auka orku og það skemmir auðvitað ekki að þær séu sætar og góðar. Kókoskúlur geta verið hlaðnar frábærum næringarefnum og flottar til að grípa með sér í nesti í skólann eða til að borða eftir æfinguna. Hefðbundnar hollari kókoskúlur innihalda þó oft hnetur sem ekki eru svo vinsælar í skólum og jafnvel í þróttahöllum en hér erum við með hnetulausar kókoskúlur þar sem ég nota sólblómafræ í staðinn fyrir hnetur. Ekki bara góðar og hentugar heldur líka skemmtileg leið til að fá börn til að borða fræ.
Sólblómafræ eru nokkuð hlutlaus á bragðið og áferðin mjúk svo það er auðvelt að skipta hnetum út fyrir sólblómafræ í fleiri uppskriftum af kókoskúlum ef þú átt þína uppáhalds. Hér er allavega innblástur en ég hvet þig líka til að prófa þig áfram.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
12 ferskar döðlur (takið steininn úr)
1 dl lífræn sólblómafræ frá Rapunzel
1/2 kókosmjöl t.d frá Rapunzel
1 msk lífræn kókosolía
2 msk hampfræ
1 msk kakóduft
nokkur saltkorn
Aðferð:
Byrjið á að steinhreinsa döðlurnar, svo er öllum innihaldsefnum komið fyrir í matvinnsluvél og maukað saman þar til orðið klístrað, tollir saman og hægt að rúlla í kúlur.
Rúllið kúlunum uppúr kókos eða kakó.
Hægt er líka að byrja á að setja fræin fyrst og mylja niðrí mjög og bæta svo döðlunum við til að fá áferðina ennþá fínni en þetta er smekksatriði og ég elska bæði.
Verði ykkur að góðu.