Kjúklingabaunasalat hefur oft verið okkar “go to” inní nestissamlokuna. Það er bragðmikið, saðsamt og nokkuð næringarþétt sem hentar fyrir bæði ferðalögin, útipiknik en líka skólanestið.

Það er að sjálfsögðu hægt að setja kjúklingabaunasalat inní vefju, útá salatskálina, nota sem meðlæti eða topping á bakaða kartöflu / sæta kartöflu, á kexið…. ég held þið náið þessu ;)

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi og gerumdaginngirnilegan.is.

Þú þarft:

  • 4 dl soðnar kjúklingabaunir

  • 3 msk vegan mæjónes*

  • 1 tsk sinnep

  • 1 msk graslaukur

  • 1/2 dl rauðlaukur

  • 2,5 msk capers

  • 1/4 tsk laukduft

  • 1/4 tsk papríkuduft

  • 1/4 tsk jurtasalt

  • & brauð eða annað sem þér finnst passa með salatinu.

Aðferð:

  1. Setjið kjúklingabaunirnar í skál (án vökva) og stappið gróflega með gaffli eða kartöflustappara.

  2. Saxið niður rauðlauk, graslauk og capers smátt.

  3. Bætið öllu saman í skál og hrærið vel.

*Fyrir wholefoods útgáfu er hægt að nota hampfræmæjónes (hnetulaust) eða kasúmæjó, hér er uppskrift af spicy kasjúmæjó en hægt er að sleppa chiliinu fyrir venjulegt kasjúmæjó.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Grískt salat með basil tófúteningum

Next
Next

Mexíkóskt quinoa