Jólaeftirrétturinn minn

Jólaeftirrétturinn minn sem er fullkominn morgunmatur annan í jólum.

Í mörg ár höfum við haft þennan eftirrétt og er hann orðinn ómissandi og ég upplifi svona hálfgerða nostalgíu þegar ég geri hann því ég fékk stundum að útbúa hann sjálf þegar ég var yngri. Hann var vissulega ekki vegan fyrst en þökk sé frábæru úrvali af vegan vörum hefur verið auðvelt að veganæsa hann síðustu ár.

Köllum hann bara: Hátíðlegur eftirréttur í hollari kantinum. Það besta við þennan eftirrétt er að hann er fullkominn í morgunmat daginn eftir. Hafrar, rjómi, jógúrt, ávextir og smá sulta…. svo gott.

Færslan er unnin í samstarfi við oatly á íslandi.

Þú þarft:

Botninn:

  • 4 dl haframjöl (ég nota lífræna frá Rapunzel)

  • 1½ dl heilhveiti 

  • 1 dl dökkur hrásykur (ég nota lífrænan frá Rapunzel)

  • 75-100 gr smjörlíki

  • 1-2 msk eplasafi eða vatn ef þarf

Ávextirnir:

  • 250 g jarðarber 

  • 250 gr vínber (fallegt er að vera með bæði rauð og græn)

  • 2 stórir bananar

  • 4-6 msk sykurlaus berjasulta frá St Dalfour.

Kremið:

  • 1 peli otlay þeytirjómi

  • 1- 2 dl hrein oatly jogurt

  • safi úr 1/2 appelsínu

  • 1- 2 msk hlynsíróp

  • Möndluflögur

Aðferð:

  1. Þurrefnunum blandað í skál og smjörinu nuddað saman við. Ef blandan er of þurr er hægt að bleyta örlítið í með eplasafa eða vatni. Þessu er síðan þrýst í botninn á smurðu eldföstu móti og bakað í ca 25 mín á 180. Ef þetta verður að einni samloðandi köku þarf að brjóta hana í litla bita þegar hún er farin að kólna. Komið haframulningnum fyrir í form sem bera á fram desertinn í.

  2. Ávextirnir eru skornir bita, ekki of smáa og þeim síðan velt uppúr sultunni. Þessu er síðan komið fyrir ofan á botninum. 

  3. Rjóminn er þeyttur og blandað saman við jógúrtina sem bragðbætt hefur verið með hlynsírópi og appelsínusafa. Smakkið til og metið hvort þurfi meira jógúrt eða hlynsíróp. Ristið möndluflögur á þurri pönnu í örskamma stund. Kreminu er síðan hellt yfir ávextina og síðan skreytt með ristuðum möndluflögum og nokkrum berjum. Eftirrétturinn er látinn standa í ísskáp í 2 klst áður en hann er borinn fram.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Sætkartöflu- og hnetusúpa með indversku tvisti

Next
Next

Sæt marokkósk linsusúpa