Tófú Taco

Tófú taco er ekki bara brjálæðislega gott heldur líka ótrúlega einfalt. Hér erum við með útgáfu af tacokrydduðu tófúi ásamt guacamole, oatly sýrðum rjóma, sýrðum rauðlauk og kóreander, borið fram í tortillavefjum.

Ef þú ert ekki ennþá búin/nn að kynnast tófúi eða kannski búinn að vera með tófú kubbinn í ísskápnum í 2 vikur en ekki lagt í að elda hann því þú miklar það fyrir þér að þurfa að pressa og marinera og allskonar vesen, þá er þetta tækifærið til að brjóta ísinn og uppgötva að tófú þarf ekki alltaf að pressa, marinera og vesenast með. Það er nefninlega líka bara hægt að kremja, steikja og krydda það.

Einn enn… og það besta við tófú! Það má borða hrátt svo að þú getur smakkað þig til á meðan þú ert að elda og ef þér finnst vanta meira bragð, bættu þá kryddi eða sojasósu útá og smakkaðu til þar til þú ert orðin/nn sátt/ur.

Færslan er unnin í samstarfi við oatly á íslandi.

Þú þarft:

Tófúið:

  • 2 msk olía

  • 2 kubbar tófú

  • 1 bréf tacokrydd 

  • 2 msk soja sósa

  • 1 msk papríkukrydd

  • 1 msk malaður kóreander 

  • salt

Guacamole:

  • 4 stór avocado

  • 1/4-1/2 smátt skorinn rauðlaukur (fer soldið eftir smekk)

  • 1 smátt skorinn rauður chili

  • Ferskur kóreander (ég notaði um 1/2 pottaplöntu)

  • safi úr 1 lime

  • salt

Annað:

  • Oatly sýrður rjómi

  • Kóreander

  • Tortilla pönnukökur (ég notaði svona litlar frá mission en þær eru ferlega þægilegar fyrir börn en það er auðvitað hægt að nota stærri líka)

  • Pikklaður rauðlaukur - uppskrift hér

Aðferð:

  1. Byrjið á að pikkla rauðlaukinn. Það er ágætt að leyfa honum að standa í að minnsta kosti 30 mínútur.

    Setjið edik, vatn og sykur í pott og látið sjóða þar til sykurinn hefur bráðnað. Skerið rauðlaukinn í sneiðar og komið honum fyrir í passlegt ílát sem hægt er að loka og þolir hita. Hellið svo edikblöndunni yfir laukinn og setjið til hliðar.

  2. Hellið vökvanum af tófúinu, skolið það og myljið það útá pönnu. Steikið á þurri pönnu í ca 2-3 mínútur svo tófúvökvinn fái aðeins að gufa upp. Bætið svo kryddum og soja útá pönnuna og steikið þar til það er orðið nokkuð þurrt, ca 10-15 mínútur. Smakkið til að bætið við salti eftir smekk.

  3. Útbúið guacamole með því að stappa saman avocado, rauðlauk, chili, limesafa og kóreander, saltið til eftir smekk.

  4. Hitið tortilla pönnuköku á þurri pönnu, eina í einu, í sirka 20 sek á háum hita. Smyrjið pönnukökuna með oatly sýrðum rjóma (ifraiche), fyllið svo með tófúinu, guacamole, pikkluðum rauðlauk og nóg af kóreander.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Waldorfsalat