Heimagerð möndlumjólk með kanil og vanillu

Hver er besta jurtamjólkin? Tegundirnar eru orðnar margar sem hægt er að kaupa útí búð sem er frábært og margar hverjar mjög góðar. Að mínu mati er þó engin sem toppar heimagerða möndlumjólk og ef þú hefur gert hana einu sinni er mjög líklegt að þú gerir hana aftur… og aftur.

Það besta við heimagerða möndlumjólk er að þú veist nákvæmlega hvað er í henni og þú getur bragðbætt hana eins og þú vilt.

Hér er ein með kanil, vanillu og döðlu til að sæta. Hún er æðisleg ein og sér, útá grautinn, í smoothieinn eða til að nota á over nigh oats.

Möndlurnar eru lagðar í bleyti yfir nótt og er það til að vekja þær, það gerir næringarefnin aðgengilegri og auðveldari í upptöku. Hýðið er síðan fjarlægt en við það verða möndlurnar auðmeltanlegri ásamt því að mjólkin fær þessa fallegu hvítu áferð. Það þarf ekki að fjarlægja hýðið og vissulega inniheldur það næringarefni en talað er um að það innihaldi einnig tannin sem getur dregið úr upptöku næringarefnanna og verða þær einnig tormeltanlegri. Fyrir litla kroppa myndi ég mæla með að fjarlægja hýðið og þá myndi ég segja að þetta sé hin fullkomna krílamjólk sem inniheldur kalk, magnesíum, fólat, kalíum og er fiturík en þó laus við alla mettaða fitu.

Þú þarft blender og sigtipoka, sigtipoka færðu í Ljósinu en Ljósið eru styrktarsamtök sem halda utan um endurhæfingu fyrir þá sem greinast með krabbamein ásamt því að bjóða uppá gagnleg námskeið fyrir bæði sjúklinga og aðstandendur. Þjónusta sem grípur mann, virkilega fallegt og mikilvægt starf í svona ferli. Í Ljósinu er boðið uppá ódýran hádegismat fyrir skjólstæðinga sína og það besta er að eldhúsið er kjötlaust.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 2 dl lífrænar möndlur (ég nota Rapunzel)

  • 10 dl vatn

  • 2-3 ferskar döðlur (fer eftir hversu sæta þú vilt hafa hana)

  • 1 tsk kanil

  • 1/2 tsk lífrænt vanilluduft (t.d. Rapunzel)

  • hnífsoddur salt

Aðferð:

  1. Byrjið á að leggja möndlur í bleyti yfir nótt (eða 12 klst).

  2. Hellið vatninu af og skolið þær og afhýðið möndlurnar með því að klemma möndluna milli fingranna og hýðið ætti að losna nokkuð auðveldlega.

  3. Setjið 2 dl af blautlögðum, afhýddum möndlum í blandara ásamt steinhreinsuðum ferskum döðlum, vanillu og kanil og blandið vel.

  4. Takið fram skál sem rúmar alla mjólkina og komið sigtipoka fyrir yfir skálinni. Hellið mjólkinni í gegnum sigtipokann og notið hreinar hendur til að kreysta allan vökvann úr pokanum í skálina.

  5. Geymið mjólkina í loftþéttu íláti og geymið í ísskáp. Ég held að mjólkin haldist ferskt í 3-4 daga en ég hef aldrei náð að eiga hana það lengi ;)

    *Í sigtipokanum verður eftir möndluhrat sem hægt er að nota í hrákex, bastur, hollar nammikúlur eða grunn í dressingar. Um að gera að leika sér með það.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

MöndluMæjó

Next
Next

Piparkökukúlur