Instagram hefur svo sannarleg áhrif á mig og ef ég opna “explore” inná instragram birtist ekkert nema ís og súkkulaði upp í flæðinu hjá mér. Ég á alltaf lífrænar kasjúhnetur, kókosmjólk og döðlur í skápnum og oft með hnetur í bleyti svo það hefur verið auðvelt að verða áhrifagjörn og rífa blandarann í gang…. oft alltof seint á kvöldin. Sorry nágrannar..

Hér erum við með súkkulaðihúðaðan kasjúís með vanillu og pistasíum…. sykurlausan að sjálfsögðu.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 1 1/2 dl kasjúhnetur frá Rapunzel

  • 1 1/2 dl pistasíuhnetur

  • 6 stórar ferskar medjoul döðlur (ca 1 dl) - hægt að skipta út fyrir hlynsíróp

  • 1 dós kókosmjólk

  • 3/4 tsk vanilluduft t.d. frá Rapunzel

  • Dökkt súkkulaði, t.d. 99% Vidia súkkulaðinu

  • saltkorn & auka pistasíuhnetur til að skreyta með

Aðferð:

  1. Byrjið á að láta kasjúhneturnar liggja í bleyti í nokkra tíma (viðmið 6 klst). Hægt er að flýta ferlinu með að leggja þær í bleyti í heitt vatn og þá ættiru að komast upp með að stytta tímann niður í 10 mínútur.

  2. Hellið vatninu af hnetunum og setjið hneturnar, döðlurnar (ath þarf að steinhreinsa), vanillu og kókosmjólk í blender og blandið þar til áferðin er orðin slétt.

  3. Hellið blöndunni í pinnaform og komið fyrir inní frysti þar til orðnir stinnir.

  4. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið ísana með súkkulaði, hægt að nota glas fyrir súkkulaðið og dífa þeim oní. Toppið svo ísana með smá salti og muldum pistasíumhentum. Súkkulaðið storknar um leið og þá er bara hægt að njóta! Þetta síðasta skref getur verið skemmtilegt fyrir krakkana að taka þátt í.

  5. Ef þið klárið þá ekki strax þá geymast þeir að sjálfsögðu inní frysti í dágóðan tíma. Best er að láta þá þiðna í nokkrar mínútur eftir að þeir koma úr frystinum til að finna fyrir mjúkri áferð.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Eggaldin bruschettur

Next
Next

Grískt salat með basil tófúteningum