Heavy metal detox smoothie með brokkólíspírum

Heavy metal detox smoothie er að verða nokkuð þekktur smoothie, upprunalega kemur uppskriftin frá Anthony William sem er betur þekktur sem Medical medium. Hann hefur hjálpað ótrúlega mörgum með sínum fræðum sem þó þykja umdeild. Margir hafa tekið eftir að fleiri og fleiri eru að fá sér hreinan sellerísafa á morgnanna en það hefur orðið vinsælt útfrá fræðum hans og margir upplifað stórkostlegar breytingar. Ég fagna því alltaf þegar fæðan er notuð til lækninga.

Hver og einn má gera það upp við sig hvort þeir trúi fræðum læknamiðilsins EN það verður ekki tekið frá honum að Heavy metal detox smoothieinn er frábærlega vel samsettur smoothie með góðri blaðgrænu, andoxun, joði, C-vítamínum og trefjum. Hann er á maukuðu formi sem léttir á meltingunni og stimlpar sig sterkann inn í lifandi lífstíl. Til að trompa þennan smoothie sem ég fæ mér ósjaldan þá hef ég bætt brokkólíspírum í hann til að tryggja þær inní daginn minn.

Brokkólíspírur er mkilvæg fræða í mínu daglegu lífi. Þær hafa ákveðna sérstöðu hvað varðar lækningarmátt en þær eru brjálæðislega háar í efni sem heitir Sulphorophane sem hefur krabbameins"eyðandi" áhrif. Brokkólíspírur eru t.d. algengustu spírurnar til þess að þurrka og selja á duftformi til inntöku þar sem lækningarmáttur þeirra er svo mikill.

Talið er að virka efnið Sulphorophene tvöfaldist í fyrsti, svo ég á það til að fyrsta mínar brokkólíspírur og setja í smoothieinn minn. Þetta eru samt einu spírurnar sem ég myndi mæla með að frysta eða setja í smoothieinn þar sem þær eru hlutlausar á bragðið þegar búið er að blanda þeim við frosin ber og ávexti. Blaðlauksspírur og radísuspírurnar myndi ég bara borða ferskar útá salatið ;)

Mæli með að dæma ekki á innihaldslýsingunni sem hljómar mögulega eins og einhver ógeðisdrykkur en ég lofa að hann kemur á óvart. Svo skemmtilega á óvart að ég hlakka til að fá mér hann.

Færslan er unnin í samstarfi við Ecospíru á íslandi.

Þú þarft:

  • 2 banana

  • 3 appelsínur (ég reyni að finna lífrænar en þær eru oft aðeins minni)

  • 200 gr frosin lífræn vilt bláber

  • Handfylli kóreander

  • Lítil handfylli af íslenskum sölum (flott mælieining)

  • 1 tsk bygggrassafi í dufti (barleygrass juice powder)

  • 1 tsk spírúlína

  • 2 msk brokkólíspírur

Aðferð:

  1. Takið hýðið utan af appelsínunum og bönununum og setjið í blender ásamt öllu hinum.

  2. Blandið þar til þetta er orðið að þykkum smoothie.

  3. Berið fram í glasi eða skál.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Hnetusteikin okkar

Next
Next

Lífrænir kókostoppar