Vegan crossaint-bollur

Fyrirhafnalitlar vegan crossaint-bollur með sykurlausum glasssúr, oatly þeytirjóma og jarðaberjum.

Færslan er unnin í samstarfi við oatly á íslandi.

Þú þarft:

  • 1 dós Danerolles crossaint deig (fæst í kæli í stærri krónubúðum)

  • 1 ferna oatly þeytirjómi

  • 1 askja fersk jarðaber

  • Sykurlaus hindberjasulta - valfrjálst

Sykurlaus súkkulaði gassúr:

  • 2,5 msk lífrænt kakó

  • 9 ferskar döðlur (steinhreinsaðar)

  • 1 tappi vanilludropar

  • 1 dl oatly haframjólk

Aðferð:

  1. Crossaint dósin er opnuð á hliðinni og dósinni snúið utan af deiginu. Rúllið deiginu út á bökunarpappír og losið um alla þríhyrningana. Rúllið hverjum þríhyrning uppí crossant og komið fyrir í ofni og bakið samkvæmt ráðleggingu á pakkningu, 12-15 mínútur. Fylgist með því að þau verði ekki of dökk.

  2. Glassúrinn er útbúinn með því að blanda öllu saman í litlum blender/matvinnsluvél eða með töfrasprota.

  3. Skerið crossöntin í efri og neðri hluta. Smyrjið súkkulaðiglassúrnum á neðri hluta crossantsins, raðið sneiddum ferskum jarðaberjum ofan á og toppið með oatly þeyttum rjóma. Setjið svo lokið á. Fyrir enn sætari bollu er hægt að blanda hindberjasultu útí rjómann sem er líka æðislega gott.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Hversdagslegt tófú í ofni með quinoa og jógúrt dillsósu

Next
Next

Chili sin carne