Mangó Lassi með ástaraldin
Færslan er unnin í samstarfi við oatly á íslandi.
Þú þarft:
1 bolli frosinn mangó
1 bolli oatly hrein jógúrt
1/2 ástaraldin
3 ferskar döðlur (taka stein úr)
safi úr 1/2-1 sítrónu
hnífsoddur túrmerik
Aðferð:
Allt sett í blandara, hellt í glas og toppað með hinum helmingnum af ástaraldininu.
Tips þetta er ein leið til að bragðbæta jógúrt með ávöxtum en flest jógúrt með bragði innihalda sykur.
Verði ykkur að góðu.