Kasjúostsfylltar eggaldinrúllur í tómatsósu
Eggaldinrétturinn sem slær alltaf í gegn. Rétturinn sem mér finnst svo gaman að bjóða uppá í matarboðum. Allir elska hann, bæði börn og fullorðnir og það besta að það er hægt að preppa hann snemma. Uppskriftin er einföld þó það fylgi henni smá dútl en hún samanstendur af kasjúosti, eggaldinsneiðum og tómatsósu sem svo er raðað saman í form.
Skrefin eru frekar óháð og auðvelt að undirbúa fyrr um daginn eða jafnvel daginn áður sem getur komið sér vel fyrir matarboð í opnu eldhúsi eða bara fyrir okkar dæmigerða upptekna hversdag. Ég allavega elska að geta flýtt fyrir mér.
Rétturinn getur staðið einn og sér en ég hef líka verið að bera hann fram með kartöflum í ofni ásamt salati og um daginn hafði ég hvítlauksbrauð með. Kryddraspinn er hægt að blanda útí hvítlauksolíu til að setja á brauð og hita það í ofni fyrir stökkt hvítlauksbrauð.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
4 Eggaldin
ólífuolíu
jurtasalt
Kasjúrjómaostur:
300 gr lífrænar kasjúhnetur frá Rapunzel
2 hvítlauksrif (eða 1/2 kúluhvítlaukur)
safi úr 1/2 sítrónu
1/4 tsk jurtasalt
2 dl vatn
Tómatsósa:
1 msk ólífuolía
2 gulir laukar
2 flöskur lífræn tómatpassata (680 gr)
2-3 dl vatn (hellist í tómatflöskurnar og hrist til að ná rest úr)
2 msk grænmetiskraftur
1 1/2 msk rauðvínsedik
1 msk herbs de provence eða ítölsk kryddblanda
Kryddraspur (valfrjálst en mæli með):
1/4 dl möndlumjöl
2 msk næringarger
1 tsk laukduft
1 tsk þurrkuð steinselja
1 tsk oregano
1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk papríka
1/4 tsk jurtasalt
Aðferð:
Byrjað er á að leggja lífrænar kasjúhnetur í bleyti í nokkra klukkutíma eða yfir nótt. Hægt er að flýta þessu skrefi með því að leggja hneturnar í heitt vatn og þá dugir að leggja þær í bleyti í 10 mínútur.
Kasjúrjómaosturinn er svo útbúinn með því að hella vatninu af kasjúhnetunum, skola þær og koma þeim fyrir í blandara ásamt safa úr sítrónu, hvítlauk, vatni og salti og blanda þar til silkimjúk.
Skerið eggaldinin í þunnar (ca 4mm) sneiðar, langsum, í gegnum eggaldinið. Þeas við viljum fá langar sneiðar sem hægt er að rúlla upp.
Raðið sneiðunum á bretti og saltið allar sneiðarnar með jurtasalti og leyfið þeim að liggja í 15 mínútur, saltið fær eggaldinið til að “svitna”.
Þurrkið svo eggaldinsneiðarnar með eldhúsbréfi og raðið þeim á ofnplötu, dreifið smá ólífuolíu yfir þær og bakið í ofni á 180° í 15 mínútur.
Útbúið sósuna með því að steikja smátt saxaðann laukinn í smá olíu eða vatni. Þegar laukurinn er orðinn mjúkur er jurtakrafti, kryddum, tómatpassata, ediki og vatnið bætt útí og leyft að malla í ca 15 mínútur á lágum hita með loki. Hrærið reglulega í pottinum. ath það getur orðið afgangur af sósunni.
Nú er komið að því að setja allt saman! Setjið ca 1 kúpta teskeið af kasjúrjómaostinum á annan endann á hverri eggaldinrúllu og rúllið eggaldinsneiðinni upp utan um ostinn. Raðið hverri rúllu þétt saman í eldfast mót.
Þegar búið er að fylla formið af fylltum eggaldinrúllum má hella sósunni yfir svo hún þekji allar rúllurnar.
Kryddraspinn útbúiði með því að koma hráefnunum fyrir í krukku og hrista því saman. Dreifið yfir réttinn áður en hann fer inní ofn.
Hitið réttinn í ca 30 mínútur á 200°.
Verði ykkur að góðu.