Hestlihnetumjólk með súkkulaðibragði
Fyrir hestlihnetu- og súkkulaðiunnendur þá er þessi mjólk the “real deal” og ég get sagt ykkur að ég vann mér inn þónokkur rokkstig hjá 7 ára stráknum mínum fyrir að vippa fram kakómjólk handa honum uppúr þurru. Mjólkin er með ríkulegt kakóbragð en hestlihnetubragðið nær samt í gegn sem ég fíla. Við mælum með að prófa þessa hollu útgáfu af kakómjólk sem er laus við sykur og aukaefni og er þar að auki nærandi að saðsöm.
Mjólkin er góð ein og sér en líka góð sem grunnur í súkkulaðichiagraut, útí smoothie eða útí piparmyntute t.d.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
200gr hestlihnetur, 1 poki frá Rapunzel
3/4 dl kasjúhnetur, ég nota frá Rapunzel
3 ferskar stórar medjool döðlur, ef þú átt ekki medjool getur þú nota c.a 6 litlar ferskar.
3 msk kakóduft
1 lítri vatn
hnífsoddur salt
Aðferð:
Hneturnar eru lagðar í bleyti í c.a 8 tíma eða yfir nóttu.
Eftir að þær hafa legið í bleyti er vatninu helt af þeim og þær skolaðar.
Öllu eru svo komið fyrir í öflugan blandara og blandað vel.
Hellið mjólkinni í gegnum síjupoka til að skilja hratið frá mjólkinni. Kreystið mjólkina út í gegnum pokann.
Komið mjókinni fyrir í loftþéttu hreinu íláti og njótið. Mjólkin geymist í 2-3 daga.
Verði ykkur að góðu.