Lífrænt appelsínu- og súkkulaði granóla

Þú þarft:

  • 1 poki Rapunzel hnetumix

  • 2 dl lífrænar kókosflögur

  • 6 dl lífrænir hafrar

  • 2 lífrænar appelsínur (börkurinn af tveimur, safinn úr einni, ca 1 dl)

  • 1 dl lífræn kókosolía

  • 1 dl hlynsíróp

  • 1 msk lífrænt möndlusmjör frá Rapunzel

  • 1/2 tsk lífrænt vanilluduft

  • 1 msk lífrænt kakóduft

  • 1/2 tsk himalyasalt

  • 3 bitar Rapunzel appelsínusúkkulaði

 Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C

  2.  Hnetumixið og kókosflögur saxað smátt og blandað saman við hafrana í skál.

  3.  Blandið saman kókosolíu, hlynsírópi, möndlusmjöri, kakói, vanillu og salti í potti ásamt berki af tveimur lífrænum appelsínum og safa úr einni, ca 1 dl. Leyfið blöndunni að hitna þar til kókosolían hefur bráðnað. Ath. blandan skal ekki ná suðu.

  4.  Blandið öllu saman og dreifið á bökunarplötu og bakið á 180°C í u.m.b. 20 -25 mínútur.  Veltið granólanu til eftir 15 mínútur og fylgist vel með.

  5.  Takið granólað út úr ofninum og leyfið því að kólna alveg á ofnplötunni. Bætið svo útí smátt sökkuðu appelsínusúkkulaði og geymið í loftþéttri krukku.

Berið fram með Oatly jógúrti eða ískaldri lífrænni Oatly mjólk og ávöxtum.

 Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Próteinrík Búddah skál

Next
Next

Rauðrófusmoothie a.k.a járnbúst í glasi